11júní
Á morgun held ég, ásamt bekkjarfélögum mínum auk gemlinganna sem munu erfa I-stofu í gamla skóla í fylgd með einvalaliði kennara, til Róms á Appenínaskaga. Í hinni sögufrægu borg hyggjumst við dvelja í eina viku og er m.a. fyrirhuguð heimsókn í Páfagarð. Nýja videocameran mín verður með í för svo að þeir sem ekki komast með þurfa ekki að örvænta, því ferðin verður að nokkru leyti fest á filmu. Hreyfimynd segir jú meira en milljón orð eins og maðurinn sagði. Meira síðar?
Óskaðu mér góðrar ferðar eðaaaaaaaa ...
20maí
Jæja, ég fór á rúntinn áðan til þess að slaka aðeins á frá próflestri. Við Máni fórum og byrjuðum á að fara á Bæjarins bestu og svo rúntuðum við um bæinn þveran og endilangan. Svo fengum við okkur ís og hittum Hildi Helgu, sem var hress.
OK, málið er að ég var kannski að slappa aðeins of mikið af frá lestri. Svo fór nú um tíuleytið að ég var stoppaður af ómerktum lögreglubíl (rauður Skoda, beware) á Hverfisgötunni og mér var gefið að sök að hafa keyrt of hægt, eða á um 20 km hraða á klukkustund. Ég vissi ekki hvernig ég átti að taka þessu, en við Máni vorum í hrókasamræðum og því tók ég ekkert eftir því hversu hratt ég var að keyra. Svo byrjaði bara blátt blikk á rauðum Skoda þannig að ég vissi ekki hvort þetta væri grín.
Gæinn sem bankaði á rúðuna hjá mér var svo í LAPD bol, sem ekki bætti úr skák - ég vissi ekki hvort þetta væru gaurar í lögguleik, en ég var ekki með ökuskírteini og var tekinn yfir í hinn bílinn, þar sem þeir kölluðu yfir talstöðvakerfið og spurðu um eiganda bílsins, sem er Sturla bróðir minn, sem þeir komust svo að því að væri ekki með ökuréttindi (rann út í nóvember 2006) og því vildu þeir taka mynd af mér til að ganga úr skugga um að ég væri ekki Sturla að villa á mér heimildir eða dópsali og svo héldu þeir víst líka fyrst að ég væri fullur.
Ojæja, ég skrifa þetta nú bara svona í belg og biðu en þetta var ákaflega skemmtilegt þrátt fyrir "alvarleika" málsins og verður sjálfsagt lengi í minnum haft, enda hef ég aldrei verið tekinn fyrir of hraðan akstur.
17maí
Í tilefni þýskuprófsins, sem þreytt verður á morgun, þá birti ég hér ljóð:
An Anna Blume Oh Du, Geliebte meiner 27 Sinne, ich liebe Dir!
Du, Deiner, Dich Dir, ich Dir, Du mir, ---- wir?
Das gehört beiläufig nicht hierher!
Wer bist Du, ungezähltes Frauenzimmer, Du bist, bist Du?
Die Leute sagen, Du wärest.
Laß sie sagen, sie wissen nicht, wie der Kirchturm steht.
Du trägst den Hut auf Deinen Füßen und wanderst auf die Hände,
Auf den Händen wanderst Du.
Halloh, Deine roten Kleider, in weiße Falten zersägt,
Rot liebe ich Anna Blume, rot liebe ich Dir.
Du, Deiner, Dich Dir, ich Dir, Du mir, ----- wir?
Das gehört beiläufig in die kalte Glut!
Anna Blume, rote Anna Blume, wie sagen die Leute?
Preisfrage:
1. Anna Blume hat ein Vogel,
2. Anna Blume ist rot.
3. Welche Farbe hat der Vogel?
Blau ist die Farbe Deines gelben Haares,
Rot ist die Farbe Deines grünen Vogels.
Du schlichtes Mädchen im Alltagskleid,
Du liebes grünes Tier, ich liebe Dir!
Du Deiner Dich Dir, ich Dir, Du mir, ---- wir!
Das gehört beiläufig in die ---- Glutenkiste.
Anna Blume, Anna, A----N----N----A!
Ich träufle Deinen Namen.
Dein Name tropft wie weiches Rindertalg.
Weißt Du es Anna, weißt Du es schon,
Man kann Dich auch von hinten lesen.
Und Du, Du Herrlichste von allen,
Du bist von hinten, wie von vorne:
A------N------N------A.
Rindertalg träufelt STREICHELN über meinen Rücken.
Anna Blume,
Du tropfes Tier,
Ich-------liebe-------Dir!
Kurt Schwitters
12maí
Mig langar til þess að spyrja ykkur, Rómarfarar, hvort þið séuð öll búin að borga staðfestingu eða jafnvel ferðina alla eða a.m.k. að ganga frá greiðslufyrirkomulaginu??
10maí
Jæja, nú er keppnin byrjuð, ég ætla að hlamma mér fyrir framan sjónvarpið og láta Macbeth sitja á hakanum meðan ég sit í sófanum. Þetta fyrsta lag, hið búlgverska, finnst mér hræðilega leiðinlegt. Söngkonan hefur enga rödd og syngur í sífellu: Mígreni, mígreni. Og ekki er ísraelska einræðisherrakjarnorkustyrjaldarádeilulagið neinu skárra, eiginlega bara hrottalegt. Þessi eiga ekkert í rauða ljónið ...
Áfram Eiríkur Hauksson, þú tekur þetta á
kynþokkanum.
10maí
Jæja, ég var nú alveg einstaklega heppinn, að mér finnst, með efni í munnlega prófinu mínu. Ég ætla hér með að skilja við námsefnið í latínu með því að birta textann sem ég fékk.
VPost eius mortem nihilo minus Helvetii id quod constituerant facere conantun, ut e finibus suis exeant. Ubi iam se ad eam rem paratos esse arbitrati sunt, oppida sua omnia, numero ad duodecim, vicos ad quadringentos, reliqua privata aedificia incendunt; frumentum omne, praeterquam quod secum portaturi erant, comburunt, ut domum reditionis spe sublata paratiores ad omnia pericula subeunda essent; trium mensum molita cibaria sibi quemque domo efferre iubent. Persuadent Rauricis et Tulingis et Latovicis finitimis suis uti eodem usi consilio, oppidis suis vicisque exustis, una cum eis proficiscantur, Boiosque, qui trans Rhenum incoluerant et in agrum Noricum transierant Noreiamque oppugnarant, receptos ad se socios sibi asciscunt.
VIErant omnino itinera duo, quibus itineribus domo exire possent: unum per Sequanos, angustum et difficile, inter montem Iuram et flumen Rhodanum, vix qua singuli carri ducerentur;
Það eru nokkur skemmtileg málfræðiatriði í þessum bútum, sem ekki eru á hverju strái eins og
coniugatio periphrastica,
abl.
viae en líka klassísk atriði eins og abl. resp., gen. obi., gerundi
vum, abl. sep. ut fin. abl. abs., ut consecutivum og explicativum og fleiri góðvinir okkar.
Þá er þetta bara búið - 30 sekúndna þögn í tilefni þess.